Hannes Þór Halldórsson, landsliðsmarkvörður Íslands, er búinn að semja við Qarabag í Aserbaídsjan. Þetta staðfestir Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hannesar, við Fótbolta.net í kvöld.
Hannes, sem er 34 ára, gekkst undir læknisskoðun í Austurríki í dag. Qarabag er þar í æfingaferð.
Qarabag er meistari í Aserbaídsjan en liðið fór í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fyrra. Qarabag vann FC Kaupmannahöfn í umspili um að komast í Meistaradeildina. Í riðlakeppninni mætti Qarabag síðan Roma, Chelsea og Atletico Madrid.
Hannes hefur spilað með Randers í Danmörku undanfarin tvö ár.
Frammistaða Hannesar á HM vakti verðskulda athygli og nokkur félög reyndu að fá hann í sínar raðir.
Qarabag mætir Olimpija frá Slóveníu í fyrstu umferð í undakeppni Meistaradeildarinnar í næstu viku, en næsti landsliðsverkefni Hannesar með Íslandi er gegn Sviss í Þjóðadeildinni í september.
Athugasemdir