Það hafa birst ótrúlegar myndir frá opnunarleik Afríkumóts kvenna sem haldið er í Marokkó.
Marokkó tók þar á móti Búrkína Fasó og skoraði Ghislane Chebbak, fyrirliði heimakvenna, eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu á 29. mínútu.
Salima Mukansanga, dómari leiksins, tók upp á því skringilega bragði að færa varnarvegg Búrkína Fasó langt aftur fyrir 9 metrana sem segir til um í reglubókinni.
Varnarveggurinn endaði ótrúlega langt frá boltanum þrátt fyrir mótmæli leikmanna Búrkína Fasó eins og má sjá á myndinni ótrúlegu hér fyrir neðan.
Athugasemdir