Fotbolti.net
03.07.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM um helgina - 32-liða úrslitin klárast og 16-liða úrslitin fara af stað

England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum

England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum

Canon

Mynd: EPA

Útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins heldur áfram að rúlla um helgina, en 32-liða úrslitin klárast í kvöld og nótt áður en 16-liða úrslitin hefjast.
Ástralía og Egyptaland mætast í 32-liða úrslitum klukkan 18:00 í kvöld áður en Argentína spilar við ævintýralið mótsins í Grænhöfðaeyjum klukkan 22:00. Kólumbía og Gana spila síðan síðasta leikinn í 32-liða úrslitum klukkan 01:30.

Á morgun hefjast 16-liða úrslitin. Gestgjafarnir í Kanada spila við Afríkumeistara Marokkó klukkan 17:00 áður en Frakkland spilar við Paragvæ fjórum tímum síðar.

Tveir leikir eru á sunnudag. Brasilía og Noregur mætast klukkan 20:00 og þá spilar England við gestgjafa Mexíkó á miðnætti.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 3. júlí

32-liða úrslit
18:00 Ástralía - Egyptaland
22:00 Argentína - Grænhöfðaeyjar
01:30 Kólumbía - Gana

laugardagur 4. júlí

16-liða úrslit
17:00 Kanada - Marokkó
21:00 Paragvæ - Frakkland

sunnudagur 5. júlí

16-liða úrslit
20:00 Brasilía - Noregur
00:00 Mexíkó - England
Hvað gerir hættulegasta sóknartríó heims gegn Paragvæ?

Hvað gerir hættulegasta sóknartríó heims gegn Paragvæ?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.