Fotbolti.net
03.07.26 - 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp staðfestir viðræður við þýska sambandið

Klopp staðfestir viðræður við þýska sambandið
Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp hefur staðfest að hann sé í viðræðum við þýska fótboltasambandið um landsliðsþjálfarastöðuna.

Julian Nagelsmann hætti sem þjálfari þýska landsliðsins eftir gríðarleg vonbriðgi á HM. Paragvæ sló Þýskaland út eftir vítakeppni í 32-liða úrslitum.
Klopp lýsir yfir vilja til að taka við Þýskalandi
TENGT EFNI

Klopp lýsir yfir vilja til að taka við Þýskalandi

„Ég get staðfest viðræðurnar. Þetta gerðist hratt, Julian sagði af sér. Sambandið er að leita að eftirmanni og þeir eru að tala við mig," sagði Klopp.

Klopp er yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni og segist þurfa að ræða við yfirmenn sína þar en hann er sannfærður um að þeir muni ekki standa í vegi fyrir honum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.