Fotbolti.net
03.07.26 - 22:08
Helgi Inguson

Rúnar Páll: Það er markmið okkar í Gróttu

Auglýsing
Rúnar Páll var ánægður með frammistöðu Andra Freys sem skoraði tvö mörk áður en hann fór meiddur af vell í fyrri hálfleik

Rúnar Páll var ánægður með frammistöðu Andra Freys sem skoraði tvö mörk áður en hann fór meiddur af vell í fyrri hálfleik

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Lengjudeildin
Grótta bar sigur úr býtum í fjörugum leik gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld. Leikar enduðu 2-1 á Vivaldivellinum. Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál Sigmundsson, þjálfara Gróttu, eftir leik.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 1 HK
„Þetta var öflugur sigur hjá okkur, við vorum hrikalega duglegir og við vildum þetta svo mikið. Við spiluðum ágætis leik, bæða varnarlega og sóknarlega. Sköpuðum okkur fullt af færum, skorum tvö frábær mörk og þau hefðu getað verið fleiri. Mjög ánægður með drengina í dag," sagði Rúnar um leikinn.

Hvað var það sem Rúnar var ánægður með?

„Bara allt. Við vorum hugrekkir, þorðum að standa og spila okkar fótbolta. Við vörðumst vel, það er bara kraftur og liðsheild í þessu liði."

Eftir sigurinn eru nýliðarnir þremur stigum frá sæti í umspilinu. Hvert er stefnan sett?

„Við stefnum bara á næsta leik og að reyna að verða betri. Við erum með ungt lið og það er mikilvægt að við náum að bæta hvern einasta leikmann sem er að spila hérna. Það er markmiðið okkar í Gróttu. Síðan hvert það leiðir okkur í stigasöfnun verður að koma í ljós," sagði Rúnar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.