Fotbolti.net
03.09.13 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Adlene Guedioura til Crystal Palace (Staðfest)

Adlene Guedioura til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace hefur krækt í Adlene Guedioura frá Nottingham Forest en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Palace náði að ganga frá kaupunum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gærkvöldi en þetta var staðfest í hádeginu í dag.
Guedioura er 27 ára gamall miðjumaður en hann kom fyrst í enska boltann þegar hann gekk í raðir Wolves árið 2010.

Eftir tvö ár þar samdi hann síðan við Nottingham Forest í fyrra.

Guedioura er fastamaður í landsliði Alsír en hann á 27 landsleiki að baki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.