03.09.26 - 14:40
Kári Snorrason
„Ekki nógu góður fyrir Stjörnuna“ en nú farinn út í atvinnumennsku

Seldur til Egersund í Noregi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fæddur árið 2005.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Seldur til Egersund í Noregi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég veit það ekki, kannski er ég ekki nógu góður fyrir Stjörnuna. Ætli það sé ekki ástæðan,“ sagði Þorlákur Breki Baxter í viðtali við Fótbolta.net í upphafi árs þegar hann gekk í raðir Keflavíkur frá Stjörnunni.
Í gær var tilkynnt um að Breki væri genginn í raðir norska B-deildar liðsins Egersund frá Keflavík. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu.
Í gær var tilkynnt um að Breki væri genginn í raðir norska B-deildar liðsins Egersund frá Keflavík. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið með möguleika um árs framlengingu.

TENGT EFNI
Valdi Keflavík fram yfir ÍBV - „Þykir rosalega vænt um fólk í Eyjum“
Breki gekk í raðir Stjörnunnar 2024 frá ítalska félaginu Lecce. Hann spilaði aðeins þrjá deildarleiki með Stjörnunni en hann var lánaður til Selfoss sumarið 2024 og ári síðar lánaður til ÍBV.
Breki er fæddur árið 2005 og er uppalinn hjá Hetti á Egilsstöðum en fór ungur til Selfoss. Þaðan var hann seldur út til Lecce á Ítalíu og var þar í tæpt ár áður en hann fór í Stjörnuna.
Breki hefur verið lykilmaður á miðjunni hjá spútnikliði Keflavíkur í sumar og spilað 18 deildarleiki.