Fotbolti.net
03.10.16 - 19:47
Magnús Már Einarsson

Alfreð: Þurfum að vinna ef ætlum að gera eitthvað í riðlinum

Auglýsing
Alfreð fagnar marki gegn Úkraínu.

Alfreð fagnar marki gegn Úkraínu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
<i>„Það rifjast upp margar minningar hérna. Ég man ennþá eftir deginum sem Egilshöllin var opnuð. Maður var hérna á nánast hverjum degi og það er ennþá sama lyktin hérna,\"</I> sagði Alfreð Finnbogason við Fótbolta.net fyrir æfingu liðsins í Egilshöll í kvöld.
Alfreð byrjaði á bekknum í leikjum Íslands á EM en fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Úkraínu þegar Kolbeinn Sigþórsson var meiddur. Alfreð skoraði gegn Úkraínu og vonast til að halda sæti sínu í leiknum gegn Finnlandi á fimmtudag.

„Það er ákvörðun þjálfarana. Ég undirbý alltaf eins og ég sé að fara að spila með landsliðinu og leggja mitt að mörkum. Ég verð að vera bjartsýnn á það,\" sagði Alfreð.

Finnar eru í 84. sæti á heimslista FIFA í augnablikinu. Má tala um skyldusigur á fimmtudag?

„Maður hefur heyrt það á Íslendingum að þetta sé skyldusigur en við vitum hvernig við erum. Við þurfum að eiga góðan leik til að vinna Finna. Ef við ætlum að gera eitthvað í þessum riðli þá er þetta leikur sem við þurfum virkilega að vinna.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.