Fotbolti.net
03.10.17 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Ari Freyr: Raggi heyrði ekki í mér tvo metra frá mér

Auglýsing
Ari Freyr: Raggi heyrði ekki í mér tvo metra frá mér
Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Icelandair
Ari Freyr Skúlason, leikmaður íslenska landsliðsins, segist aldrei hafa upplifað eins mikla stemningu inni á vellinum og í leiknum gegn Tyrkjum fyrir tveimur árum. Ísland mætir Tyrklandi aftur á föstudag í mjög mikilvægum leik.
„Ég held að þetta hafi verið skemmtilegasta upplifun með stuðningsmenn,\" sagði Ari en gífurleg læti voru á vellinum í Konya fyrir tveimur árum.

„Við gátum ekkert talað saman. Það er ekkert hægt að stjórna, stýra eða ræða neitt. Raggi stóð tveimur metrum frá mér og ég reyndi að öskra á hann að það væri maður að koma. Hann yrti ekki einu sinni á mig. Hann vissi ekkert um þetta.\"

Ari hefur verið á bekknum í síðustu þremur leikjum en Hörður Björgvin Magnússon hefur tekið stöðu hans í vinstri bakverðinum.

„Það er alltaf leiðinlegt þegar maður er ekki að spila en við erum saman í þessu og maður peppar þá sem eru að spila og er klár þegar tækifærið kemur,\" sagði Ari.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.