Ítalía: Atalanta rúllaði yfir Napoli - Spenna á toppnum


Mynd: EPA


Mynd: EPA
<b>Napoli 0 - 3 Atalanta</b>
0-1 Ademola Lookman ('10 )
0-2 Ademola Lookman ('31 )
0-3 Mateo Retegui ('90 )
Fyrir leik Atalanta og Napoli var Napoli á toppi deildarinnar og ósigraðir í 8 deildarleikjum í röð, 7 sigrar og eitt jafntefli. Atalanta unnu sannfærandi 3-0 sigur sem þýðir að Atalanta er nú komið í 2. sætið aðeins þremur stigum á eftir Napoli en Inter Milan eru einu stigi á eftir Atalanta og eiga leik til góða.
Leikurinn byrjaði frábærlega fyrir Atalanta þegar Lookman braut ísinn á 10. mínútu en 20 mínútum síðar var Lookman aftur á ferðinni og var þá búinn að tvöfalda forystuna. Charles De Ketelaere lagði upp bæði mörkin. Hálfleikstölur voru 2-0 Atalanta í vil.
Napoli reyndu eins og rjúpan við staurinn að vinna sig aftur inn í leikinn og gerðu fullt af breytingum í seinni hálfleiknum en Atalanta kláruðu leikinn í lokin. Það Mateo Retegui sem skoraði á 92. mínútu og innsiglaði frábæran 3-0 sigur Atalanta.
Þetta er ansi óvænt þar sem Napoli hafði fengið á sig 5 mörk í 10 leikjum fyrir þennan leik. Atalanta er núna þremur stigum frá Napoli sem er á toppi deildarinnar. Inter Milan er í 3. sæti og eiga leik til góða. Með sigri Inter fara þeir í 2. sætið aðeins einu stigi frá Napoli.
