Fotbolti.net
03.11.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Gravenberch ekki með á morgun

Gravenberch ekki með á morgun
Canon

Mynd: EPA

Hollenski miðjumaðurinn Ryan Gravenberch er ekki í leikmannahópi Liverpool sem mætir Fenerbahce í Meistaradeildinni á morgun.
Gravenberch sat á varamannabekknum gegn Arsenal um helgina en kom ekki við sögu í leiknum.

Hann glímir við smávægileg meiðsli og verður ekki leikfær gegn Fenerbahce.

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, segist vona að hann verði klár fyrir helgina.

„Við tökum þetta dag fyrir dag. Hann er að glíma við hælmeiðsli og þetta snýst fyrst og fremst um sársaukann. Hann hefur fundið til og það gerði hann líka þegar hann hitaði upp gegn Arsenal. Honum leið einfaldlega ekki hundrað prósent. Vonandi verður hann klár um helgina. Það væri frábært, en erfitt er að segja til um það eins og staðan er núna,“ sagði Iraola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.