Nýtt heimsmet sett í Brasilíu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davi Fernandes Bittencourt skoraði þriðja mark Mamore og ákvað í kjölfarið að ögra varamannabekk Uberlandia. Það fór illa í markmannsþjálfara liðsins, sem hljóp inn á völlinn og hrinti Bittencourt.
Þá sauð allt upp úr og hófust gríðarleg slagsmál þar sem ekki aðeins leikmenn og þjálfarar létu til sín taka, heldur einnig boltastrákarnir, sem köstuðu alls kyns hlutum og létu höggin dynja.
Alls voru 51 rauðu spjaldi veifað, sem er nýtt heimsmet og stórbætir fyrra metið frá árinu 2011 þegar 36 manns fengu rautt spjald í leik Claypole og Victoriano Arenas í argentínsku fimmtu deildinni.
Nýja metið hefur þegar verið skráð í heimsmetabók Guinness.
Lætin voru þó ekki búin eftir leikinn því leikmenn Mamore gengu berserksgang í búningsklefanum og eyðilögðu meðal annars tólf hurðir, baðherbergið og tvö baðkör.
Allir þeir sem fengu rautt spjald gætu átt yfir höfði sér langt keppnisbann, allt að 180 daga, en aganefndin mun koma saman á næstu vikum og ákveða refsingarnar.
O futebol ficou em segundo plano no jogo de ida da semifinal da Segunda Divisão do Campeonato Mineiro Sub-20, entre Uberlândia e Mamoré, no último domingo (1º/11). Apesar da vitória do Mamoré por 3 a 1, no Estádio Parque do Sabiá, em Uberlândia, no Triângulo Mineiro, o que chamou a atenção foi a briga generalizada que tomou conta do gramado e terminou com 52 expulsões, sendo 44 jogadores e oito integrantes das comissões técnicas, segundo a súmula da partida.
— O TEMPO (@otempo) November 3, 2026
O número impressiona e supera até mesmo a marca de 36 jogadores expulsos em um único jogo, reconhecida pelo Guinness World Records. O recorde foi registrado em 2011, durante um confronto entre Claypole e Victoriano Arenas, pela quinta divisão do futebol argentino.
