Fotbolti.net
03.11.26 - 19:11
Brynjar Ingi Erluson

Íslensk samvinna tryggði Lyngby dramatískan bikarsigur

William Steindorsson skoraði sigurmarkið eftir stoðsendingu Daníels

William Steindorsson skoraði sigurmarkið eftir stoðsendingu Daníels

Canon

Mynd: Lyngby

Danska liðið Lyngby er komið áfram í 8-liða úrslit danska bikarsins eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Randers í kvöld.
Þrír Íslendingar voru í byrjunarliði Lyngby, þeir Daníel Freyr Kristjánsson, Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson.

Hinn dansk-íslenski William Steindórsson kom inn af varamannabekknum snemma í fyrri hálfleik og reyndist hetja liðsins þegar hann skoraði sigurmarkið seint í uppbótartíma eftir undirbúning Daníels.

Þetta var fyrsta mark Williams á tímabilinu, en hann hefur leikið fjóra deildarleiki með Lyngby og var að spila sinn annan bikarleik á leiktíðinni.

Lyngby mætir Nordsjælland í 8-liða úrslitunum en spilað er heima og að heiman. Leikirnir fara fram 2. og 12. desember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.