Marc McAusland: Vildi aðeins breyta um umhverfi
Auglýsing

Marc McAusland fagnar hér marki með St Mirren árið 2012

Mynd: Getty Images

„Þetta var ný reynsla fyrir mig, en hún var góð,“ sagði Marc McAusland, nýjasti leikmaður Keflavíkur, en hann lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í markalausu jafntefli gegn Val í Lengjubikarnum í kvöld.
McAusland gekk til liðs við Keflavík í vikunni, en hann hefur áður leikið með skosku liðunum St. Mirren, Queen of the South og Dunfermline Athletic.

„Sem varnarmaður viltu halda hreinu sem oftast og við gerðum það í dag, þannig að ég er ánægður. Við fengum færi til að skora, en svona er þetta og það sem mikilvægast er að við héldum hreinu,“ sagði McAusland eftir leik.
En hvernig endar skoskur leikmaður sem á að baki leiki í úrvalsdeildinni í Skotlandi hjá liði sem leikur í næst efstu deild á Íslandi?
„Ég vildi breyta aðeins til, komast aðeins frá Skotlandi og prófa annað land. Ég var heppinn að þjálfarinn vildi fá mig, en ég hef notið þesssara reynslu hingað til og mér hlakkar til næsta leiks.“
„Ég hef bara upplifað Keflavík, en ég vonast til þess að skoða allt hitt á næstu vikum. Hingað til hefur þetta verið mjög fínt og þetta er mjög flottur staður,“ sagði McAusland að lokum.