Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 04. maí 2022 22:54
Sverrir Örn Einarsson
Gunnar Magnús: Tökum góðan leik og fáum okkur góðan bragðaref á eftir
Gunnar Magnús Jónsson
Gunnar Magnús Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Varnarvinnan var bara frábær hjá stelpunum. Fylgdu öllu skipulagi mjög vel, dugnaðurinn, viljinn og hentu sér fyrir bolta. Við gerðum okkur alveg grein fyrir því fyrir leikinn að við værum að fara í þannig leik að við þyrftum að verjast. Við ætluðum bara að njóta þess og svo skemmir ekki fyrir að hún var stórkostleg í markinu fyrir aftan.“
Sagði Gunnar Magnús Jónsson þjálfari Keflavíkur um leik liðs síns þegar Keflavík lagði Breiðablik 1-0 nú fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Breiðablik

Leikurinn var að mörgu leyti eins og leikur liðana í Keflavík í fyrra þar sem Keflavík komst yfir snemma en Blikar í það skiptið jöfnuðu á lokaandartökum leiksins. Hvað fór í gegnum huga Gunnars þegar dómari leiksins flautaði víti djúpt í uppbótartíma?

„Það var svolítið blendið ef ég segi alveg eins og er. Auðvitað hundfúlt að fá á sig víti svona í blálokin eftir alla þessa vinnu en það laumaðist að mér að hún var búin að vera svo frábær í markinu og þetta væri svona dagur sem er stundum með markmenn að hún myndi bara halda hreinu í dag og ég hafði trú á því að hún myndi verja þetta víti.“

Gunnar Magnús var líflegur á hliðarlínunni í dag sem fyrr og hvatti sína leikmenn vel áfram. Fréttaritari sló á létta strengi og spurði Gunnar hvort hann eða leikmenn færu þreyttari á koddann í kvöld?

„Ég hugsa að leikmenn verði nú mun þreyttari. Ég sagði við þær fyrir leik að ég óskaði eftir þannig framlagi í dag að þær gætu varla gengið á morgun. Við Suðurnesjamenn erum bara þekkt fyrir það að við leggjum okkur fram, tökum góðan leik og fáum okkur góðan bragðaref á eftir og þá erum við fersk á morgun. “

Sagði Gunnar en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner