„Einn lélegasti leikmaður sem ég hef séð hjá þessu félagi"

Weston McKennie hér með landa sínum, Brenden Aaronson.

Mynd: Getty Images

Það er óhætt að segja að Weston McKennie hafi ekki heillað mikið frá því hann gekk í raðir Leeds United í janúar síðastliðnum.
McKennie er með ansi góða ferilskrá; hann er bandarískur landsliðsmaður sem lék með Juventus og Schalke áður en hann kom til Englands.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur hins vegar gert afskaplega lítið fyrir Leeds, eins og rætt var um í Enski boltinn í gær.
„Weston McKennie hefur verið einn lélegasti leikmaður sem ég hef séð hjá þessu félagi," sagði Jóhann Ingi Hafþórsson, stuðningsmaður Leeds, í þættinum.
„Það hefur ekki hjálpað honum að Tyler Adams er búinn að vera meiddur meira og minna frá því hann kom. Þeir áttu að vera miðjupar. Hann ræður engan veginn við þetta tempó í ensku úrvalsdeildinni."
„Ég er var rosalega spenntur því maður sér prófílinn hans. Ég var gríðarlega spenntur að fá hann inn í liðið en það eina sem hann gerir er að fá gul spjöld og missa boltann á hættulegum stöðum."
„Hann er náttúrulega í engu standi líka," sagði Sæbjörn Steinke í þættinum. „Það er ótrúlegt að þú sért atvinnumaður í fótbolta og sért sýnilega í engu standi."
Rætt var meira um vandamál Leeds í þættinum sem hægt er að hlusta á í heild sinni hér að neðan og í öllum podcast veitum.