Fotbolti.net
04.05.26 - 10:20
Innkastið
Steypustöðin

Sterkastur í 5. umferð - Löðrandi í gæðum

Stefán Árni Geirsson (KR)

Stefán Árni Geirsson var geggjaður gegn Val.

Stefán Árni Geirsson var geggjaður gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni Geirsson kom inn í byrjunarlið KR í stórleiknum gegn Val og nýtti tækifærið stórkostlega. Hann skoraði tvívegis í 4-1 sigri KR-inga sem eru með fullt hús.

„Hann er löðrandi í gæðum og gaman að fylgjast með honum í þessum leik," segir Elvar Geir í Innkastinu.

„Ef maður skoðar fremstu menn KR þá eru svo rosalega mikil gæði í þessu. Það er svo mikill sköpunarmáttur í þessum leikmönnum Stebbi kemur inn í þetta flæði og þetta hentaði ansi vel," segir Valur Gunnarsson.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
TENGT EFNI

Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

Stefán Árni er Sterkasti leikmaður umferðarinnar.

„Kemur inn í liðið í stað Eiðs Gauta og skorar tvennu. Var virkilega flottur í spilinu líka og náði góðri tengingu við leiftursnöggan sóknarbolta KR án aðlögunar. Menn verða að fá þetta val þegar svoleiðis ber að garði," skrifaði Alexander Tonini frá Hlíðarenda.

„Hann kom gríðarlega sterkur inn, við vissum það. Það var okkar tilfinning að hann gæti komið inn og leyst þessa stöðu vel. Auðvitað er hann allt öðruvísi framherji en Eiður Gauti. Hann var virkilega flottur og er auðvitað frábær leikmaður," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir leikinn.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Stefán eftir leikinn.

Sterkustu leikmenn:
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)

Stefán fagnar á Hlíðarenda.

Stefán fagnar á Hlíðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum

Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.