Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 17:15
Aðsendir pistlar
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Tæklum neikvæða menningu A liðs stráka
Birna Kristín Jónsdóttir og Soffía Ámundadóttir skrifa
Aðsendir pistlar
Aðsendir pistlar
Mynd: Aðsend
Hvernig breytum við neikvæðri menningu í jákvæða?

Við sem störfum í kringum knattspyrnu á Íslandi höfum mikilvægu hlutverki að gegna. Við erum fyrirmyndir og getum haft gríðarlega mikil áhrif á hugsun og gildismat iðkenda. Við kveikjum neista áhugahvatar á íþróttinni, styðjum við iðkendur, hlúum að uppeldi, hjálpum þeim að finna út hverjir þeir eru og hver ástríða þeirra er í lífinu.

Greinarhöfundar hafa unnið í nokkra áratugi í knattspyrnuheiminum á Íslandi sem iðkendur, við þjálfun, kennt þjálfurum, setið í nefndum, önnur sem formaður félags en síðast en ekki síst sem áhugafólk um jákvæða þróun íslenskrar knattspyrnu. Önnur okkar starfar mikið í ofbeldis forvörnum í skólakerfinu og í gegnum áratuga reynslu rekið sig á umræðu um stöðu A liðs drengja í skólakerfinu. Margir þeirra þykja erfiðir og þá sérstaklega í framkomu og hegðun. Þeir eru góðir með sig, hrokafullir og beita aðra nemendur og kennara líkamlegu og andlegu ofbeldi. Starfsfólk skóla víðs vegar um landið segja þá einn erfiðasta hópinn að vinna með í skólakerfinu. Nú er ekki verið að alhæfa að allir strákar í A liðum hagi sér svona en eitthvað mynstur virðist vera komið upp sem nauðsynlegt er að brjóta upp. Stúlkurnar hafa ekki þetta orð á sér og þess vegna einbeitum við okkur að drengjunum.

Greinarhöfundar eru nemendur í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands. Teljum við að margt í því námi og verkfæri greinarinnar gætu nýst vel í þessu breytingarferli við að rétta af hegðunina. Jákvæð sálfræði er rannsóknarsvið innan sálfræðinnar sem leit dagsins ljós í kringum síðustu aldamót. Hún er vísindaleg nálgun á jákvæða mannlega eiginleika sem hefur það að markmiði að rannsaka hvað reynist fólki vel og stuðlar að vellíðan þess. Skoðað er hvað fær einstaklinga, hópa og stofnanir til að blómstra. Í okkar tilfelli iðkendur, lið og jafnvel íþróttafélög. Hvaða þættir byggja undir og viðhalda jákvæðri heilsu og andlegri vellíðan. Hvernig getum við hjálpað þessum drengjum að breyta orðspori sínu í framkomu og hegðun? Við teljum að vinna þurfi með þessa neikvæðu menningu sem hefur verið við lýði um langt skeið með jákvæðum inngripum. Þannig stuðlum við að breytingum og vonandi verður neikvæð menning að jákvæðri.

En hvernig förum við að þessu? Við trúum því að drengirnir vilji gera betur og með aukinni sjálfsþekkingu og sjálfsstjórn sé hægt að byggja upp færni í því að vera góð manneskja sem auðveldar þeim að takast á við samkeppnina sem felst í kapphlaupi knattspyrnunnar. Tilgangur knattspyrnuiðkunar ætti alltaf að vera velferð og hamingja. Þrotlausar æfinga allt árið í kring, einbeiting og metnaður sem drengirnir sýna í iðkun sinni segir okkur að þeir eru færir um að leggja mikið á sig. Hafa byggt upp þrautseigju til að takast á við mótlæti og erfiðleika. Að vera valinn í A liði fylgir andleg vellíðan. Iðkandi er að uppskera vel og blómstra. Fyrir marga iðkendur er gríðarlega mikilvægt að ná inn í A liðið. En af hverju? Skiptir styrkleiki liða svona miklu máli fyrir iðkendur eða kannski meira máli fyrir foreldra? Þessum spurningum er erfitt að svara og líklega eru svörin mismunandi eftir iðkendum og foreldrum. Eitt er víst að þegar iðkandi er valinn í A lið breytist stundum framkoma og hegðun til hins verra.

Okkur langar að benda á leiðir fyrir þjálfara, félög og foreldra til að vinna með sína A liðs iðkendur. Jákvæð sálfræði hefur þróað jákvæð inngrip sem eru markvissar athafnir eða hagnýtar æfingar sem miða að því að rækta með sér jákvæðar tilfinningar, breyta hegðun eða þróa hugræn ferli. Mikilvægt er að þekkja og nýta styrkleika sína rétt, þróa með sér hugarfar vaxtar, hafa félagsleg samskipti, efla tengsl, stunda þakklæti, læra nýja hluti, vera í núvitund, gefa af sér á góðan hátt og stunda íþróttir líkt og knattspyrnu. Við erum bjartsýnar á að breytingar geti orðið ef viðfangsefnið er tekið föstum tökum. Sem iðkendur, þjálfarar eða foreldrar er alltaf valkvætt hvaða viðhorf við kjósum að hafa. Þetta er ekki vandamál hjá mér, neita að horfast í augum við vandann eða einfaldlega gera ekki neitt. Þá verðum við að muna að það sem við nærum vex og dafnar. Í þessu tilfelli væri það neikvæð menning. Við teljum mikilvægt að grípa inn í vegna þess að þessi framkoma og hegðun getur ekki stuðlað að aukinni andlegri vellíðan á þroskabraut iðkenda. Hér eru dæmi um jákvæð inngrip sem hægt er að vinna með:

Þekktu sjálfan þig – Hjálpum iðkendum að þekkja sjálfan sig og vera meðvitaðir um hvað gerir þá sérstaka. Allir hafa hæfileika og mikilvægt er að þekkja þá og virkja. Iðkendur sem þekkja vel eigin færni og styrkleika standa betur að vígi en þeir sem gera það ekki. Ef við einbeitum okkur af því sem er jákvætt í fari iðkenda þá minnkar það hið neikvæða. Hver iðkandi gerir sitt styrkleikakort sem hjálpar honum að dýpka þekkingu sína á sjálfum sér.

Þrír góðir hlutir – Iðkendur skrifa niður þrjá góða hluti sem gerðust yfir daginn eða á æfingu. Þá fara iðkendur að setja orku og einbeitingu í góða hluti og neikvæðir hlutir eru ekki fóðraðir. Einnig er hægt að skrifa um áhrifin á sjálfan sig og aðra í umhverfinu þegar góðir hlutir eru framkvæmdir.

Þakklætisbók – Iðkendur skrifa niður í þakklætisbók á hverjum degi hvað þeir eru þakklátir fyrir þann daginn og fara þá að veita því eftirtekt í lífinu. Æfa sig í að gefa af sér, leggja gott til annarra og gefa án þess að ætlast til að fá til baka. Þakklæti breytir hugarfari og beinir athyglinni að því sem er jákvætt.

Jákvæður leiðtogi – Fyrirlestur og umræður um jákvæðan leiðtoga. Jákvæður leiðtogi er áhrifaríkur og skapar jákvætt umhverfi í kringum sig. Þegar iðkendur upplifa jákvæðni í kringum leiðtoga þá skapar það hamingju, betri árangur og meiri líkur á að markmiðum sé náð.

Heilindi og gildi – Vinna með gildi sín og haga sér samkvæmt þeim. Skrifa niður gildin sín í bók og endurskoða úr frá hegðun. Hrein samviska eflir sjálfstraustið.

Núvitund – Góð leið til þess að róa hugann og njóta þess að vera í núinu. Góð leið fyrir iðkendur til þess að njóta augnabliksins Njóta þess góða sem maður gerir af athygli. Leyfa sér að vera mannlegur og gangast við þeim tilfinningum sem brjótast fram í sigrum og ósigrum á knattspyrnuvellinum.
Fimm góðverk á einum degi – Æfing í að gera hluti sem koma öðrum til góða. Það að gera öðrum gott ýtir undir vellíðan hjá iðkendum. Þá geta iðkendur skoðað hjá sjálfum sér áhrif jákvæðra tilfinninga sem koma þegar maður gerir góðverk.

Þessi jákvæðu inngrip geta iðkendur auðveldlega tileinkað sér til að stuðla að jákvæðri menningu innan síns liðs, haft jákvæð áhrif á hugarfar sitt, aukið vellíðan og seiglu. Með þessari vinnu fá iðkendur tækifæri til að æfa sig, þekkja sig betur og geta þess vegna gripið frekar til jákvæðrar hegðunar og framkomu í sínu lífi. Jákvæð inngrip eru verkfæri sem ætlað er að kalla fram jákvæðar breytingar sem við teljum vera nauðsynlega til að vinna á móti neikvæðri menningu A liða í knattspyrnu. Rannsóknir hafa sýnt fram á mælanlegan árangur inngripa á vellíðan og lífshamingju fólks. Vellíðan iðkenda er mögulega tímabundin en þá eykur hún jákvæða líðan sem svo eykur andlegt og líkamlegt úthald, eykur víðsýni og ýtir undir jákvæða hegðun. Allt eru þetta þættir sem gætu nýst A liðs drengjum vel, aukið félagsfærni þeirra og styrkt þá í góðum samskiptum.
Von okkar með þessari grein er að knattspyrnu heimurinn hlusti á skólasamfélagið og taki ábendingum þeirra um framkomu og hegðun A liðs drengja í knattspyrnu til athugunar. Öll lið skipta máli hvort sem þau heita A B C eða D, allir iðkendur skipta máli og þessari menningu þarf að breyta. Það hljótum við öll að vera sammála um.

Áfram Ísland!
Birna Kristín Jónsdóttir
Soffía Ámundadóttir

Þær bjóða upp á styrkleika vinnustofur út frá lokaverkefni sínu í jákvæðri sálfræði, voru m.a. með fyrirlesturinn Eykur meðvitund styrkleika jákvæða menningu? á súpufundi KSÍ á dögunum.
Athugasemdir
banner