Liverpool hefur sett sig í samband við RB Leipzig varðandi möguleikann á því að kaupa kantmanninn Yan Diomande.
Sky Sports segir að enska félagið hafi ekki lagt fram tilboð, en Liverpool hafi látið vita af áhuga sínum.
Sky Sports segir að enska félagið hafi ekki lagt fram tilboð, en Liverpool hafi látið vita af áhuga sínum.
Áður hefur verið sagt frá því að félög eins og Manchester United og PSG hafi augastað á Fílbeinstrendingnum. Bayern Munchen hefur einnig fylgst með þróun mála hjá kantmanninum en RB Leipzig vill endursemja við kappann. Þýska félagið er sagt vilja fá um 100 milljónir evra fyrir kappann.
Diomande er aðeins 19 ára gamall og kom með beinum hætti að 23 mörkum í 36 leikjum með RB Leipzig á nýliðnu tímabili. Þá er hann með 3 mörk í 9 landsleikjum fyrir Fílabeinsströndina og er í hópnum sem fer á HM.


