Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fim 04. júní 2026 13:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sara Björk kynnt hjá Haukum á morgun
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með landsliðinu árið 2008.
Í leik með landsliðinu árið 2008.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa boðað til kynningar- og blaðamannafundar á morgun, föstudaginn 5. júní klukkan 15:00.

Á fundinum, sem haldinn verður í knatthúsi Hauka, verður Sara Björk Gunnarsdóttir kynnt sem nýr leikmaður félagsins.

Sara (1990) er uppalin hjá Haukum og er að snúa heim eftir mjög farsælan feril í atvinnumennsku. Hún lék síðast með Haukum fyrri hluta Íslandsmótsins 2008.

Frá því hefur hún spilað með Breiðabliki, Rosengård, Wolfsburg, Lyon, Juventus og nú síðast Al Qadsiah í Sádi-Arabíu. Húnn vann Meistaradeild Evrópu bæði með Wolfsburg og Lyon. Húnn er margfaldur sænskur og þýskur meistari og vann einnig frönsku deildina með Lyon.

Hún er fyrrum landsliðsfyrirliði og sú næstleikjahæsta í sögu landsliðsins með 145 leiki.

Haukar eru í toppsæti Lengjudeildarinnar með fullt hús eftir fimm leiki. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.

Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 5 0 0 15 - 8 +7 15
2.    Grótta 5 4 0 1 16 - 7 +9 12
3.    KR 5 4 0 1 14 - 7 +7 12
4.    Keflavík 5 2 1 2 11 - 8 +3 7
5.    Selfoss 5 2 1 2 9 - 8 +1 7
6.    ÍA 5 2 0 3 10 - 8 +2 6
7.    Völsungur 5 2 0 3 8 - 8 0 6
8.    FHL 5 1 1 3 7 - 9 -2 4
9.    HK 5 1 1 3 7 - 13 -6 4
10.    Tindastóll 5 0 0 5 3 - 24 -21 0
Slapp
banner