Bjarni Þór Hafstein er genginn til liðs við Augnablik á láni frá Fjölni en þetta kemur fram í tilkynningu Augnabliks.
Bjarni Þór, sem er uppalinn Bliki, gekk í raðir Fjölnis frá Víkingi Ólafsvík fyrir tímabilið en hann hefur spilað þrjá leiki í Lengjudeildinni á þessu tímabili.
Þá á hann einn leik í bikar fyrir Fjölni en hann mun klára tímabilið með Augnablik í 3. deildinni.
Hann þekkir vel til hjá Kópavogsliðinu en hann spilaði með liðinu í 3. deildinni bæði 2019 og 2020 þar sem hann gerði fjögur mörk í þrettán deildarleikjum.
Augnablik situr í 6. sæti deildarinnar með 14 stig eftir níu leiki.
HE'S BACK!
— Augnablik (@Augnablikid) July 4, 2022
Auðmjúkur Bjarni Hafstein með endurkomu í Augnablik frá Fjölni.
Það hrislast gæsahúð um Kópavog🦆#éghefekkitíma pic.twitter.com/YROifTcXSO
Athugasemdir