04.08.13 - 09:15
Ívan Guðjón Baldursson
Dempsey til Seattle Sounders (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Einn bjartasti punktur bandarískrar knattspyrnu undanfarin ár og fyrirliði landsliðsins er búinn að skrifa undir samning við MLS félagið Seattle Sounders.
Ekki er búið að gefa upp hversu hátt kaupverðið er, en Dempsey kom á 6 milljónir punda frá Fulham í félagsskiptaglugga síðasta sumar og er farinn strax aftur þrátt fyrir 12 mörk í 43 leikjum sem miðjumaður fyrir Tottenham.

Dempsey var opinberlega kynntur stuðningsmönnum Seattle Sounders eftir 3-0 sigur liðsins á Dallas og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar hann sýndi Seattle treyjuna sína í kynningunni.