Stund sem ungi Grindvíkingurinn mun aldrei gleyma - „Ótrúlega góð tilfinning"

Mikael Máni ásamt vinum sínum eftir leikinn gegn HK.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Mikael Máni og foreldrar hans.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Markinu dýrmæta fagnað.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Kom inn á í leiknum og skoraði sigurmarkið.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Mikael Máni á að baki ellefu leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Máni ásamt vinum sínum eftir leikinn gegn HK.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Grindavík hélt örlögunum í sínum höndum með því að sigra HK í síðustu umferð. Sigurmarkið var ansi dramatískt, kom í uppbótartíma og var þar á ferðinni heimamaðurinn Mikael Máni Þorfinnsson. Hann er fæddur árið 2010 og var að skora sitt fyrsta mark í meistaraflokki.
Mikael Máni ræddi við Fótbolta.net.

Damir: Virkilega gaman að sjá ungan heimamann fá að upplifa svona stund
„Leikurinn leggst mjög vel í mig. Það er góð stemning í hópnum og við erum allir klárir í að fara í þennan leik og ná í þrjú stig. Við vitum að þetta er leikur sem við þurfum að vinna og það er ekkert annað í boði en að mæta á fullum krafti og með fulla einbeitingu," segir Mikael Máni.
„Það getur verið snúið að fara í leik gegn liði sem hefur ekki unnið lengi og er fallið úr deildinni því þá er auðvelt að hugsa að þetta eigi að vera einfalt. Við þurfum að passa okkur á því að vanmeta þá ekki því þeir hafa engu að tapa og geta komið mjög ákveðnir inn í leikinn. Við þurfum bara að halda okkur við okkar leik, vinna okkar vinnu og nýta færin þegar þau koma. Við þurfum líka að muna tilfinninguna sem skapaðist eftir síðasta leik og taka hana með okkur í leikinn."
Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma
Tilfinningin eftir síðasta leik fékkst eftir dramatískt sigurmark frá Mikael Mána sem hafði komið inn á sem varamaður. Hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu. Markið má sjá hér neðst í fréttinni.
„Það var ótrúlega góð tilfinning. Fyrsta meistaraflokksmarkið mitt og síðan að það hafi verið sigurmark í svona mikilvægum leik er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma."
„Ég var bara að reyna að finna mér gott svæði í teignum og vera tilbúinn ef boltinn kæmi. Ég var kannski aðeins hissa á því að vera svona laus en þegar boltinn kom reyndi ég bara að stangann í netið."
„Mér fannst líka mjög gaman að sjá viðbrögðin eftir markið og hvað það þýddi fyrir liðið. Það er það sem skiptir mestu máli fyrir mig, að geta hjálpað liðinu að ná í mikilvæg stig. Að fyrsta markið mitt skuli hafa komið á svona mikilvægum tímapunkti gerir þetta auðvitað enn skemmtilegra."
Gott að vera hjá Grindavík
Mikael Máni fór á reynslu til ítalska félagsins Torino og Fótbolti.net fjallaði um það á síðasta ári að erlendir njósnarar hefðu fylgst með honum. Hvernig sér framtíðin við þér? Ertu með drauma um að fara út í vetur?
„Framtíðin leggst bara mjög vel í mig. Ég er spenntur fyrir því sem er framundan og finnst ég vera á góðum stað til að halda áfram að þróast og fá meiri reynslu. Mér finnst líka mjög gott að vera hjá Grindavík og mér finnst þetta vera góður staður fyrir mig til að halda áfram að bæta mig."
„Það væri auðvitað gaman að fá tækifæri til að fara út og spila erlendis einhvern tímann en ég er ekkert að stressa mig á því núna. Ég ætla bara að halda áfram að leggja mig fram, standa mig vel og sjá svo hvað gerist," segir Mikael Máni að lokum.
Mark umferðarinnar var kannski ekki það flottasta sem við höfum sýnt í sumar en klárlega eitt það mikilvægasta. Hjörtur og Jón Þór völdu sigurmark Mikaels Mána Þorfinssonar sem mark 21. umferðar Lengjudeildar karla pic.twitter.com/agdGpsTsg6
— Livey (@liveysport) September 2, 2026

Mikael Máni og foreldrar hans.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Markinu dýrmæta fagnað.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Kom inn á í leiknum og skoraði sigurmarkið.

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Mikael Máni á að baki ellefu leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |

