Lið vikunnar í enska - Son, Salah og Foden

Tottenham vann 2-1 sigur gegn Aston Villa í skemmtilegum leik, Brentford tryggði sér sigur gegn West Ham í uppbótartíma 2-1, Úlfarnir unnu Newcastle 2-1 og Leeds vann Watford 1-0. Burnley gerði markalaust jafntefli við botnlið Norwich og 2-2 urðu lokatölur í leik Crystal Palace og Leicester.

Markvörður: David Raya (Brentford) - Spánverjinn hefur sýnt hvers hann er megnugur. Frábær í dramatískum sigri gegn West Ham.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Cesar Azpilicueta (Chelsea) - Átti sína aðra stoðsendingu á tímabilinu.

Mynd: EPA

Varnrmaður: Diego Llorente (Leeds United) - Skoraði sigurmarkið í mikilvægum sigri.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Trevoh Chalobah (Chelsea) - Tvö skot og tvö mörk hjá honum á tímabilinu!

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Andros Townsend (Everton) - Sá er að njóta sín í botn hjá Everton. Skoraði gegn United.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Pierre-Emile Höjbjerg (Tottenham) - Sá danski átti stórleik og skoraði fyrra mark Spurs.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Bernardo Silva (Manchester City) - Var frábær í gegnum allan leikinn gegn Liverpool.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Son Heung-min (Tottenham) - Lagði upp sigurmark Tottenham á stórglæsilegan hátt.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Skoraði sturlað mark gegn City og stuðningsmenn Liverpool tala um hann sem besta sóknarleikmann heims í dag.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Hwang Hee-chan (Wolves) - Skoraði tvennu og Úlfarnir virðast hafa fundið markaskorara til að vega upp með Raul Jimenez.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Phil Foden (Manchester City) - Elskar að skora gegn Liverpool og var sífellt ógnandi.

Mynd: EPA




