Fotbolti.net
07.07.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Onana meiddist á hné og gæti verið lengi frá

Amadou Onana í spelku á bekknum

Amadou Onana í spelku á bekknum

Canon

Mynd: EPA

Amadou Onana, miðjumaður Aston Villa og belgíska landsliðsins, gæti verið lengi frá eftir að hafa meiðst á hné í 4-1 sigrinum á Bandaríkjunum á heimsmeistaramótinu í gær.
Onana kom inn í byrjunarlið Belga í gær, en hafði verið að glíma við smávægileg meiðsli.

Hann hafði aðeins byrjað einn leik á mótinu fram að þessu og fengið nokkrar mínútur gegn Nýja-Sjálandi og Senegal.

Miðjumaðurinn var klár í að byrja gegn Bandaríkjunum, en á 18. mínútu meiddist hann á hné þegar hann ætlaði að spila boltanum frá sér. Hann greip strax um hnéð og var augljóslega sárþjáður.

Onana var skipt af velli og Hans Vanaken kom inn í hans stað.

Í uppbótartíma skoraði Romelu Lukaku fjórða mark Belga og fagnaði með því að lyfta treyju Onana á loft. Það ýtti enn frekar undir óttann um að meiðslin séu alvarleg, ekki síst þar sem Onana sást haltra með spelku á hliðarlínunni undir lok leiks.

Onana er fastamaður í liði Aston Villa þegar hann er heill, en hann lék 38 leiki á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk þegar Villa hafnaði í 4. sæti og vann Evrópudeildina.

Romelu Lukaku fagnaði marki sínu með því að lyfta treyju Onana á loft

Romelu Lukaku fagnaði marki sínu með því að lyfta treyju Onana á loft

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.