James Tarkowski, leikmaður Burnley, er orðaður við Newcastle þessa dagana en hann verður samningslaus næsta sumar.
Tarkowski er gríðarlega mikilvægur í hjarta varnarinnar hjá Burnley og er eðlilega orðaður við önnur félög er stutt er í samningslok.
Sean Dyche, stjóri Burnley, var spurður út í stöðu Tarkowski í dag og gat varlað hrósað sínum manni meira í samtali við blaðamenn.
„Ég tel að frammistöður Tarky tali sínu máli. Hans fagmannleiki hefur verið ótrúlegur, hann hefur verið gallalaus," sagði Dyuche.
„Allt fyrir utan það er ekki í mínum höndum, þannig virkar þessi leikur. Ég get bara sagt að sem atvinnumaður hefur hann verið stórkostlegur."
Það er alveg ljóst að Dyche vill halda þessum öfluga leikmanni í sumar en önnur félög munu væntanlega reyna við hann í janúar.
Athugasemdir