Lið vikunnar í enska - Man City á flesta

Ben Foster (Watford) - Hélt hreinu í markalausu jafntefli gegn Brighton.

Mynd: Getty Images

Willy Boly (Wolves) - Náði að koma í veg fyrir mörg færi í útisigri á Everton.

Mynd: Getty Images

Fernandinho (Manchester City) - Spilaði í vörninni gegn Arsenal og tókst vel á við það hlutverk.

Mynd: Getty Images

Victor Lindelöf (Manchester United) - Svíinn hjálpaði United að halda hreinu gegn Leicester.

Mynd: Getty Images

Sol Bamba (Cardiff) - Fyrirliðinn var eins og klettur í tilfinningaríkum sigri á Bournemouth.

Mynd: Getty Images

Paul Pogba (Manchester United) - Átti frábæra stoðsendingu á Marcus Rashford gegn Leicester.

Mynd: Getty Images

Ilkay Gundogan (Manchester City) - Frábær á miðjunni í sigrinum á Arsenal.

Mynd: Getty Images

Son Heung-min (Tottenham) - Skoraði sigurmarkið mikilvæga gegn Newcastle.

Mynd: Getty Images

Eden Hazard (Chelsea) - Skoraði tvívegis í burstinu á botnliði Huddersfield.

Mynd: Getty Images

Gonzalo Higuain (Chelsea) - Stimplaði sig inn í enska boltann með tveimur mörkum. Það síðara kom með glæsilegu skoti.

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero (Manchester City) - Skoraði þrennu og afgreiddi Arsenal.

Mynd: Getty Images





