Fotbolti.net
05.03.23 - 18:36
Brynjar Ingi Erluson

Klopp brjálaðist eftir að áhorfandi hljóp inn á völlinn og meiddi Robertson

Áhorfandinn lenti á ökklanum á Robertson

Áhorfandinn lenti á ökklanum á Robertson

Canon

Mynd: Getty Images

Stórfurðulegt atvik átti sér stað er leikmenn Liverpool fögnuðu sjöunda marki liðsins á Manchester United á Anfield í dag en áhorfandi hljóp inn á völlinn og meiddi Andy Robertson og Curtis Jones í fögnuðinum.
Roberto Firmino gerði sjöunda mark liðsins eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Stemningin var auðvitað góð á Anfield og fór svo að einn áhorfandinn hljóp inn á völlinn og lenti á Andy Robertson og Curtis Jones.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool. urðaði yfir þennan stuðningsmann er öryggisverðir tóku hann af velli. Leiðinlegur endir á annars geggjaðri frammistöðu Liverpool.

Sjáðu atvikið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.