Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   fim 05. mars 2026 19:36
Snæbjört Pálsdóttir
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Eimskip
María Catharina Ólafsdóttir Gros gekk nýverið til liðs við Djurgården
María Catharina Ólafsdóttir Gros gekk nýverið til liðs við Djurgården
Mynd: Djurgården
Mynd: Guðmundur Svansson
Mynd: Guðmundur Svansson

Landsliðskonan María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði sinn fyrsta A-landsleik þegar hún kom inn fyrir Sædísi Heiðarsdóttur á 78. mínútu gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar. 

Hvernig var tilfinningin að koma inn á völlinn og gegn heimsmeisturunum?

„Ég var mjög spennt en alveg smá stressuð auðvitað, langaði að gera vel og svona en það var sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum.“

Hafðu hún það á tilfinningunni að hún kæmi inn á?

„Nei, ég vissi það ekki en auðvitað alltaf tilbúin og bara smá stress. Alltaf gott að hafa smá stress.“'

„Varnarleikurinn var mjög góður og svo klárlega getum við byggt á aðeins í sóknarleiknum en við sáum alveg að við gátum spilað ef við róum okkur aðeins niður.“


Hvernig hafa stelpurnar tekið á móti þér?

„Bara mjög vel, ég hélt að það myndi verða erfiðara að koma inn í hópinn en þær eru allar bara mjög yndislegar.“

María Catharina var að mála hjá Linköping og var meðal annars valinn nýliði ársins  hjá félaginu. Hún skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú í 26 leikjum. Það er því ekki að undra að Djurgården sá sér leik á borði þegar Linköping féll og krækti í Maríu. Hún skrifaði því nýverið undir þriggja ára samning við Djurgården.

Hvernig er lífið í Svíþjóð?

„Það er bara frábært, ég var að flytja núna til Stokkhólms og líður bara mjög vel í Stokkhólmi.“

„Já mér finnst deildin í Svíþjóð mun líkari íslensku deildinni, meira svona fysikal í Hollandi og kannski meira svona taktískt og svona. Þannig ég lærði mjög mikið í Hollandi og tók það með mér til Svíþjóðar.

Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner