Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 05. apríl 2021 07:30
Aksentije Milisic
Di Maria: Væri æðislegt að spila með Messi hjá PSG
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria, leikmaður PSG í Frakklandi, segir að hann myndi elska það að fá samlanda sinn, Lionel Messi, til PSG.

Di Maria og Messi hafa spilað marga leiki saman með landsliði Argentínu en Di Maria segir að hann væri mjög til í að spila með honum hjá félagsliði.

Messi getur yfirgefið Barcelona eftir tímabilið en ennþá er óljóst hvað hann gerir.

„Ég hef séð margt á mínum ferli. Eitt af því er að Messi er frá annari plánetu. Það væri æðislegt að vera liðsfélagi hans hjá PSG," sagði Argentínumaðurinn.

„Hann er samt leikmaður Barcelona, hann er með samning. Eftir það, þá sjáum við til. Ég tala mikið við hann og segi við hann að mikilvægasta í þessu er hamingjan. Að honum og fjölskyldu hans líði vel."

Joan Laporta, forseti Barcelona, vonast eftir því að félaginu takist að halda Messi í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner