Jói Kalli: Þurftum ekki að leita neitt lengra
Auglýsing

Jóhannes Karl tók við ÍA eftir síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur,\" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir góðan sigur á Leikni R. í 1. umferð Inkasso-deildarinnar.
„Það var erfitt að brjóta þá niður. En þegar leið á, þá fórum við að skapa hættulegri og fleiri færi. Við náðum svo þessum dýrmæta færi,\" sagði Jóhannes Karl.
Jóhannes Karl tók við ÍA eftir síðasta tímabil. Hann er að byggja upp liðið á Skagamönnum og enginn erlendur leikmaður er í liðinu.
„Það skiptir okkur ansi miklu máli að vera með öfluga liðsheild og það er eitthvað sem við ætlum að byggja á. Það var aldrei neitt markmið að sækja útlending. Við náðum að styrkja okkur með frábærum Skagamönnum og líka nokkrum aðkomumönnum. Við þurftum ekki að leita neitt lengra.\"
ÍA er spáð efsta sæti deildarinnar hjá flestum.
„Það er eðlilegt að okkur sé spáð efsta sætinu, við féllum úr Pepsi-deildinni og erum Skaginn með alla okkar sögu. Við erum með öflugan leikmannahóp en það gefur okkur ekki neitt. Við þurfum að klárir, allan tímann í hverjum einasta leik í sumar.
„Við þurfum að vera á tánum til þess að ná okkar markmiðum. Við ætlum okkur að fara upp.\"
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.