17.07.26 - 00:03
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Keflvíkingar í sjöunda himni - Sara Björk á bekknum en mátti ekki spila

Keflavík vann stórsigur á Haukum

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Keflavík 7 - 0 Haukar
1-0 Anita Lind Daníelsdóttir ('8 )
2-0 Anita Bergrán Eyjólfsdóttir ('22 )
3-0 Eva Dís Sighvatsdóttir ('43 )
4-0 Ásthildur Lilja Atladóttir ('47 , sjálfsmark)
5-0 Ariela Lewis ('50 )
6-0 Ariela Lewis ('59 )
7-0 Anita Lind Daníelsdóttir ('88 )

Keflavík bar stórsigur á Haukum, 7-0, í Lengjudeild kvenna í kvöld.
Haukar höfðu verið í smá niðursveiflu og ekki unnið í þremur leikjum í röð eftir annars góða byrjun á tímabilinu á meðan Keflavík fékk þrjú stig gefins í síðustu umferð þar sem Tindastóll mætti ekki til leiks.
Heimakonur í Keflavík komust í tveggja marka forystu á rúmum tuttugu mínútum. Anita Linda Daníelsdóttir og nafna hennar, Anita Bergrán Eyjólfsdóttir, skoruðu mörkin.
Eva Dís Sighvatsdóttir bætti við þriðja undir lok fyrri hálfleiks áður en fjórða kom í upphafi síðari er Ásthildur Lilja Atladóttir setti boltann í eigið net.
Ariela Lewis kom sér á blað á 50. mínútu og gerði hún annað mark sitt níu mínútum síðar áður en Anita Lind gekk endanlega frá gestunum með marki undir lok leiks.
Stórsigur Keflvíkinga sem eru í 5. sæti með 13 stig en Haukar í 4. sæti með 14 stig.
Sara Björk Gunnarsdóttir kom heim úr atvinnumennsku og samdi við Hauka, en hún bíður eftir leikheimild. Hún var liðsstjóri í leiknum í kvöld, en áætlað er að hún verði með í næsta leik.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Grótta | 13 | +12 | 29 |
| 2 | KR | 12 | +15 | 23 |
| 3 | HK | 13 | +3 | 20 |
| 4 | Selfoss | 12 | +6 | 19 |
| 5 | ÍA | 13 | +6 | 18 |
| 6 | Haukar | 12 | -5 | 18 |
| 7 | Keflavík | 12 | +10 | 17 |
| 8 | FHL | 12 | +2 | 17 |
| 9 | Völsungur | 13 | -4 | 12 |
| 10 | Tindastóll | 12 | -45 | 3 |