Fjölskyldur flúðu óeirðirnar og leituðu skjóls á vellinum - „Skammarlegt“

Mynd: X

Mynd: X
Óeirðarsveitin á Norður-Írlandi var kölluð út í leik Derry City og CSKA Sofiu í 1. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Lætin brutust út fyrir leik liðanna og særðist einn lögreglumaður í átökum stuðningsmanna í borginni.
Óeirðirnar færðust síðan inn á leikvanginn í síðari hálfleik og urðu aðstæður beinlínis hættulegar. Fjölskyldur flúðu inn á sjálfan völlinn til að komast undan látunum í stúkunni.
Óeirðarlögreglan var kölluð á vettvang og gat leikurinn haldið áfram um fjórtán mínútum síðar.
Mark H. Durkan, þingmaður á norður-írska þinginu, sagði atburðina skammarlega og að svara þyrfti alvarlegum spurningum um öryggisráðstafanir á leikvanginum.
Hann telur líklegt að málið muni hafa alvarlegar afleiðingar fyrir Derry City og sagði óeirðirnar hafa varpað skugga á annars hetjulega frammistöðu leikmanna liðsins.
CSKA Sofia vann leikinn 2-1 og einvígið samanlagt 5-3. Búlgarska liðið er því komið áfram í 2. umferð forkeppninnar en Derry City fellur niður í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Ugly scenes at the Brandywell as our correspondent @CaoimhinDohe reports that CSKA Sofia fans tore up the divide and charged at the kids in the family stands, subsequently leaving the kids to run onto the pitch to get away from the Bulgarians.
— Irish Football Fan TV (@irishfantv) July 16, 2026
This is absolutely shameful stuff pic.twitter.com/0KiUszIXiJ
Serious questions need asked of @derrycityfc and @PSNIDCSDistrict.
— Bailey Wilson (@WilsonTBailey) July 16, 2026
Why were CSKA Sofia fans marched past a Derry City pub?
Why was there no police prescense in the stands?
Why was the segregation a couple of fences?
CSKA Sofia are infamous. This was avoidable. pic.twitter.com/W2zrtpQaEz