HM um helgina - Hver verður heimsmeistari?

HM-bikarinn er undir

Mynd: EPA

Lionel Messi getur kvatt HM með stæl

Mynd: EPA

Lamine Yamal er aðeins 19 ára en gæti verið ríkjandi Evrópu- og heimsmeistari eftir sunnudaginn

Mynd: EPA

HM-bikarinn er undir

Mynd: EPA
Úrslitaleikur heimsmeistaramótsins fer fram á MetLife-leikvanginum í New Jersey á sunnudag, þar sem Argentína og Spánn eigast við.
Á morgun verður leikið um bronsverðlaun heimsmeistaramótsins þegar England og Frakkland eigast við á Hard Rock-leikvanginum í Miami. Leikurinn hefst klukkan 21:00.
Frakkar fengu silfur á síðasta heimsmeistaramóti og urðu heimsmeistarar þar á undan. Englendingar hafa hins vegar ekki unnið til verðlauna á HM síðan þeir urðu heimsmeistarar á heimavelli árið 1966.
England hefur tvisvar áður leikið um bronsverðlaunin og tapað í bæði skiptin, en Frakkar hafa tvisvar tryggt sér bronsið.
Á sunnudag tekur síðan við leikurinn sem allir bíða eftir, sjálfur úrslitaleikurinn.
Lionel Messi og félagar eiga þar möguleika á að verja heimsmeistaratitilinn, en Spánverjar freista þess að verða heimsmeistarar í annað sinn. Þeir unnu mótið síðast árið 2010 með lið stútfullt af gæðum.
Átta ár eru liðin síðan þjóðirnar mættust síðast. Spánverjar fóru þá létt með Argentínumenn og unnu 6-1.
Þjóðirnar hafa aðeins einu sinni áður mæst á heimsmeistaramóti. Það var árið 1966 þegar Argentína vann 2-1 sigur.
Nú er spurningin hvort ný kynslóð Spánverja hafi það sem til þarf til að stöðva Argentínu og lyfta bikarnum, eða hvort Messi kveðji sitt síðasta heimsmeistaramót með gull um hálsinn.
Leikir helgarinnar:
Laugardagur:
21:00 Frakkland - England
Sunnudagur:
19:00 Spánn - Argentína