Olísmótið framundan á Selfossi - AIK mætir til leiks


Mynd: Selfoss


Mynd: Selfoss


Mynd: Selfoss
Hið árlega Olísmót, sem knattspyrnudeild Selfoss stendur fyrir, verður haldið helgina 7-9.. ágúst næstkomandi. Um er að ræða mót fyrir drengi sem spila í 5. flokk. Líkt og áður á Olísmótinu verður umgjörðin eins og best verður á kosið. Leikið er hratt, stutt á milli leikja og lögð áhersla á faglega og góða dómgæslu.
Í ár eru 25 ár síðan mótið var haldið fyrst en þetta er í tuttugasta skipti sem mótið er unnið í samstarfi við Olís.
Í fyrsta sinn í sögunni mætir erlent stórlið á Olísmótið en í ár mæta fulltrúar sænska liðsins AIK. Alls verða þátttakendur á mótinu í ár 600 talsins frá tæplega tuttugu félögum.
Leikmenn meistaraflokks karla á Selfossi verða með flautuna á mótinu og sjá til þess að allt fari vel fram. Dómararnir verða með gul og rauð spjöld sem verða notuð til þess að undirstrika það að að óvarleg hegðun eða ítrekuð brot hafi afleiðingar. Ef leikmaður fær gult spjald fær hann sér sæti á varamannabekknum í tvær mínútur í svokallaða kælingu. Nýr leikmaður má koma inná í hans stað. Þá gefst þjálfurum tækifæri á að fara yfir málin með þeim aðila sem fékk að líta spjaldið.
Leikið er 8 gegn 8 á stórum völlum sem eru afgirtir til að leikmenn njóti sín betur inni á vellinum og flæðið í leiknum verði betra. Þjálfarar og fararstjórar sem mæta með lið á mótið fá veitingar þeim að kostnaðarlausu á meðan mótinu stendur.
Það er því óhætt að segja að afar spennandi Olísmót sé framundan á Selfossi í byrjun ágúst.
Nánari upplýsingar og skráning á mótið á [email protected]


Mynd: Selfoss





