Fotbolti.net
05.05.19 - 19:29
Kristófer Jónsson

Óskar Örn: Eftirleikurinn auðveldur eftir fyrsta markið

Auglýsing
Óskar Örn var frábær í dag

Óskar Örn var frábær í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, var maður leiksins þegar að hans menn unnu góðan 3-0 sigur gegn ÍBV í annari umferð Pepsi Max-deildar karla á Meistaravöllum í dag.

<i>„Ég er ánægður með góð þrjú stig. Við vorum svolítið að bíða eftir þessu fyrsta marki. Um leið og það kemur var eftirleikurinn svolítið auðveldur."</i> sagði Óskar eftir leik.
Staðan var markalaus þegar að flautað var til hálfleiks þar sem að ÍBV hafði varist vel. En þegar að 10 mínútur voru liðnar af þeim seinni komust KR yfir.

„Við vorum búnir að kortleggja þá ágætlega. Þeir slá út Stjörnuna hér fyrr í vikunni þannig að við vorum að vinna gott lið."

Óskar Örn var frábær í leiknum og skoraði hann eitt mark og lagði upp hin tvö og var hann að sjálfsögðu ánægður með sinn leik.

„Já ég er ánægður en það eru stigin þrjú sem að skipta öllu máli í þessu." sagði Óskar að lokum.

Nánar er rætt við Óskar í spilaranum að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.