Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. maí 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Margrét og Sara Mjöll skrifuðu undir nýja samninga
Mynd: Palli Jóh
Þær Margrét Árnadóttir og Sara Mjöll Jóhannsdóttir, leikmanne Þór/KA, skrifuðu undir nýja samninga hjá félaginu á mánudag.

Margrét er framherji sem á að baki 71 leik með Þór/KA og sjö unglingalandsleiki. Hún er fædd árið 1999 og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2016.

Sara Mjöll er markvörður sem leikið hefur 38 leiki með Hömrunum og var varamarkvörður Þór/KA tímabilin 2017 og 2018. Hún á jafnramt að baki þrjá leiki með U16 landsliðinu.

Samningur Margrétar gildir út næsta tímabil en samningur Söru út tímabilið 2023.


Margrét Árnadóttir
Athugasemdir
banner
banner