Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 05. maí 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Kveður eftir að hafa tryggt liðinu sæti í Meistaradeild Evrópu
Marcelino er á förum frá Villarreal
Marcelino er á förum frá Villarreal
Mynd: EPA
Spænski þjálfarinn Marcelino mun yfirgefa Villarreal þegar samningur hans rennur út í sumar en þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í gær.

Villarreal hefur spilað frábæran fótbolta undir Marcelino síðan hann tók við liðinu árið 2023.

Á dögunum tryggði hann Villarreal inn í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu en hann verður ekki áfram þrátt fyrir þann magnaða árangur.

Félagið mun ekki framlengja við hann, en það skoðar nú þjálfaramarkaðinn og er Inigo Perez, þjálfari Rayo Vallecano, sagður líklegastur til að taka við.

Perez er að gera vel með Rayo en hann er kominn með liðið í undanúrslit Sambandsdeildarinnar.

Hann starfaði áður með Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, og var einn af þeim sem var orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið áður en Marco Rose samþykkti að taka við því eftir tímabilið.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
18 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
19 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner
banner