Fotbolti.net
05.06.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Adrian í West Ham (Staðfest)

Adrian í West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur fengið markvörðinn Adrian í sínar raðir frá Real Betis.
Adrian kemur frítt til West Ham en samningur hans við Betis er að renna út.

Þessi 26 ára gamli leikmaður krotaði undir þriggja ára samning hjá Sam Allardyce og félögum með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Adrian hefur verið hjá Real Betis frá tíu ára aldri og lék með B og C-liði félagsins áður en hann vann sér sæti í byrjunarliðinu á þessu tímabili.

Hjá West Ham mun Adrian berjast við Jussi Jaaskelainen um markvarðarstöðuna.

Heimild: Heimasíða West Ham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.