Fotbolti.net
05.06.13 - 14:05
Magnús Már Einarsson

Roberto Martinez tekinn við Everton (Staðfest)

Roberto Martinez tekinn við Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Martinez hefur verið ráðinn stjóri Everton en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.

Þessi 39 ára gamli Spánverji verður formlega kynntur til sögunnar hjá Everton á fréttamannafundi klukkan 15:00.

Martinez tekur við af David Moyes sem hefur stýrt Everton undanfarin ellefu ár en mun taka við Manchester United í sumar.
Martinez tók við Wigan árið 2011 og stýrði liðinu til sigurs í enska bikarnum í vor en það féll einnig úr ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.