Fotbolti.net
05.06.19 - 20:49
Arnar Helgi Magnússon

Donni: Þriðja skipti sem ég segi að Selfoss sé með frábært lið

Auglýsing
Donni: Þriðja skipti sem ég segi að Selfoss sé með frábært lið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hertz
Þór/KA sigruðu Selfoss í eina leik dagsins í Pepsi Max-deild kvenna. Leikið var á JÁVERK-vellinum á Selfossi en leiknum lauk með 0-1 sigri gestanna frá Akureyri.
Donni, þjálfari Þórs/KA var sáttur með sitt lið eftir leikinn í kvöld.

„Þetta var ótrúlega góður sigur. Við vorum vinnusamar, duglegar og börðumst vel. Við sýndum frábæra samstöðu og ég er stoltur af liðinu að hafa sigrað frábærlega flott og vel skipulagt lið Selfoss," sagði Donni.

„Mér fannst þær mjög góðar en þetta var jafn leikur en þetta datt okkar megin í dag."

Fyrri hálfleikurinn var fjörugur en sá síðari var öllu lokaðri.

„Mér fannst reyndar bara allur leikurinn frekar lokaður. Við erum vanar því að fá töluvert fleiri færi en við fengum í dag. Selfyssingar gerðu mjög vel í að loka á okkar sóknarlotur og þær áttu svosem sín færi líka."

„Mér finnst við vera með sterkara lið á pappír en Selfoss lið var bara frábært, eins og ég er að segja í þriðja skiptið núna. Þetta hefði getað dottið hvoru megin sem var."

Spjallið við Donna má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.