Fotbolti.net
05.06.19 - 11:30
Arnar Daði Arnarsson

Gylfi Sig: Náði ekki mínu markmiði

Auglýsing
Gylfi Þór Sigurðsson.

Gylfi Þór Sigurðsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Everton er kominn til landsins og byrjaður að æfa með íslenska landsliðinu í undirbúningi liðsins fyrir tvo mikilvæga leiki gegn Albaníu og Tyrklandi í undankeppni EM 2020.

Gylfi segist vera heilt yfir nokkuð ánægður með tímabilið hjá Everton en vill gera betur á næsta tímabili.
„Tímabilið var fínt. Heilt yfir var þetta fínasta tímabil. Það kom kafli í kringum desember, janúar þar sem við nánast klúðrum tímabilinu en við enduðum þetta vel. Við vorum sterkir í lokin en vonandi náum við að byrja næsta tímabil eins og við enduðum þetta,"

Gylfi skoraði 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Það er það mesta sem landsliðsmaðurinn hefur skorað á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

„Auðvitað er ég nokkuð sáttur en ég vil alltaf gera betur. Ég náði ekki mínu markmiði hvað varðar markaskorun en vonandi kemur það á næsta ári."

Hann segir mikilvægt að ná í sigur gegn Albaníu á laugardaginn.

„Við höfum spilað við þessi lið nokkrum sinnum áður. Hvað varðar Albaníu þá er nokkuð erfitt að fara út í það hvaða leikmenn eru að fara spila. Þeir hafa verið með 3-4 þjálfara á nokkrum árum og Freyr fór yfir það í gær að þeir hafa valið 50-60 leikmenn í síðustu hópa. Það er gríðarlega mikið af leikmönnum hjá þeim og það er erfitt að velja byrjunarlið hjá þeim," sagði Gylfi.

Viðtalið við Gylfa í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.