PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraká
Búinn að þekkja Óla í 40 ár – „Það er ekkert nýtt“
Eimskip
Ólafur Kristjánsson.
Ólafur Kristjánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ólafur Kristjánsson gerðist aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins stuttu eftir Evrópumótið í fyrra. Ólafur er með gríðarlega reynslu og hefur komið inn í starfið af krafti.

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, var spurður út í breytingarnar á þjálfarateyminu í viðtali í gær en framundan er mikilvægur leikur við Úkraínu í kvöld.

„Það hefur verið gott, alltaf gott að gera einhverjar breytingar. Frá því ég byrjaði hafa verið miklar breytingar á starfsfólki," sagði Þorsteinn.

„Þegar þjálfari er búinn að vera í töluverðan tíma þá þarf nýjar raddir með honum til að það sé ferskleiki í gangi."

Með nýjum mönnum koma nýir vinklar og nýjar áherslur sem er jákvætt. Steini var þá spurður út í Óla, hvort það væri mikill húmor í honum eins og sögur eru um.

„Ég er búinn að þekkja Óla í 40 ár, spilaði með honum fyrir 40 árum fyrst. Það hefur ekkert komið mér á óvart, ég er búinn að þekkja hann það lengi að það er ekkert nýtt," sagði Steini léttur.
Slapp
banner
banner
banner