Fyrr í dag greindi Telegraph frá því að Florentino Pérez forseti Real Madrid væri að undirbúa risatilboð í Michael Olise, kantmann FC Bayern og franska landsliðsins.
05.06.2026 12:28
Segja að Olise sé leikmaðurinn sem Perez sé að tala um
Fréttin var skrifuð eftir ummæli Pérez sem stendur í ströngu í miðri kosningabaráttu. Hann lofaði Madrídingum ýmsum nýjum leikmönnum og talaði um að undirbúa risatilboð í stjörnuleikmann sem er í heimsklassa. Hann talaði um 150 milljón evru tilboð, sem væri metfé í sögu félagsins.
Pérez var spurður hvort umræddur leikmaður væri Harry Kane eða Michael Olise og neitaði forsetinn fyrir það. Nú er þó útlit fyrir að umræddur leikmaður sé í raun Olise eftir að Guardian tók undir fregnina frá Telegraph.
Þetta er í fyrsta sinn í meira en 20 ár sem Pérez er í kosningabaráttu um forsetastól Real Madrid, en hann hefur verið forseti félagsins samfleytt síðan 2009.
Talið er að Bayern hafi engan áhuga á að selja sinn verðmætasta leikmann.
05.06.2026 07:30
Ætlar að kaupa dýrasta leikmann í sögu Real Madrid




