Freyr Alexanderson var látinn taka poka sinn hjá Íslendingaliðinu Brann í upphafi vikunnar. Hann hafði stýrt liðinu í um eitt og hálft ár.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Atla Magnússon, leikmann Brann, sem þekkir Frey betur en flestir þar sem þeir hafa unnið saman bæði í Brann og Lyngby.
Fótbolti.net ræddi við Sævar Atla Magnússon, leikmann Brann, sem þekkir Frey betur en flestir þar sem þeir hafa unnið saman bæði í Brann og Lyngby.
„Þetta er hrikalega ömurlegt. Ég fékk að vita þetta aðeins áður, hann heyrði í mér. Þetta var mikið sjokk, ég bjóst ekki við þessu. Við vorum ekki á góðum stað í deildinni en klefinn var góður og mikið um meiðsli. Fyrst og fremst var þetta bara mjög leiðinlegt.“
Hvernig tóku leikmenn þessu?
„Málið með okkur leikmennina var að við vorum komnir í frí sem gerir þetta enn leiðinlegra. Við fengum ekki að kveðja hann, ég hitti hann aðeins reyndar. Ég hef talað við einhverja en við erum ekkert búnir að hittast. Við munum ekki hittast fyrr en eftir tvær vikur sem gerir þetta enn leiðinlegra.“
„Við erum búnir að vera óheppnir á þessu ári en samt komist áfram í Evrópudeildinni, komist í bikarúrslitin en tapað síðustu þremur í deildinni sem er ekki nægilega gott. Það er að koma sex vikna frí og við vorum að fá menn til baka. Ég var alveg handviss um að við værum að fara vinna leiki aftur og keyra á þetta,“ sagði Sævar jafnframt.
Ertu búinn að vera í miklu sambandi við Freysa eftir brottreksturinn?
„Nei, hann heyrði bara í mér og síðan hitti ég hann úti á velli. Ég tók æfingu á mánudeginum og var aðeins lengur í Noregi, fór ekki strax í frí. Ég heyrði aðeins í honum og verðum í betra sambandi seinna,“ sagði Sævar að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
























