26.07.26 - 17:11
Brynjar Ingi Erluson
Skoraði í þriðja æfingaleiknum í röð

Igor Jesus er heitur í byrjun undirbúningstímabilsins

Mynd: EPA

Nottingham Forest gerði 1-1 jafntefli við Vitoria Guimaraes í æfingaferð sinni í Portúgal í dag.
Brasilíski sóknarmaðurinn Igor Jesus skoraði eina mark Forest í leiknum þegar hann stýrði boltanum í netið af stuttu færi.
Hann hefur þar með skorað í öllum þremur æfingaleikjum liðsins á undirbúningstímabilinu.
Forest lýkur æfingaferð sinni í Portúgal með leik gegn Sporting eftir fimm daga.
Því næst tekur liðið fjóra æfingaleiki gegn Udinese, Barcelona, Bayer Leverkusen og Brest áður en keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst gegn Leeds 22. ágúst.

Three in three for Igor. ???????????? pic.twitter.com/WsEbPALhh0
— Nottingham Forest (@NFFC) July 26, 2026