Fotbolti.net
26.07.26 - 16:50
Brynjar Ingi Erluson

Viðræðurnar halda áfram í næstu viku

Viðræðurnar halda áfram í næstu viku
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal ætla að ræða á ný við Newcastle United í næstu viku um kaup á brasilíska miðjumanninum Bruno Guimaraes. Fabrizio Romano greinir frá þessu á X.
Arsenal hefur þegar náð samkomulagi við Guimaraes um kaup og kjör. Newcastle á von á öðru tilboði á næstu dögum eftir að hafa hafnað fyrsta tilboði Lundúnaliðsins upp á 65 milljónir punda.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum vill Guimaraes yfirgefa Newcastle. Óvíst er þó hvort hann sé tilbúinn að leggja fram formlega sölubeiðni til að reyna að fá sínu framgengt.

Eddie Howe, stjóri Newcastle, ræddi framtíð fyrirliðans á dögunum. Hann sagðist hafa átt góð samtöl við Guimaraes en kæmi lítið að ákvörðunum um sölu leikmanna.

Guimaraes er 28 ára gamall og hefur borið fyrirliðaband Newcastle frá árinu 2024. Hann átti stóran þátt í sigri liðsins í enska deildabikarnum á síðasta ári en það var fyrsti stóri titill félagsins í 70 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.