PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 21:18
Ívan Guðjón Baldursson
Slot sakaður um að hafa verið með leiðindi og stæla
Mynd: EPA
Þýski miðillinn Bild segir að hluti leikmannahóps Liverpool hafi verið orðinn mjög þreyttur á Arne Slot þjálfara áður en hann var rekinn. Þjálfarinn er meðal annars sakaður um að hafa gert lítið úr leikmönnum liðsins sem komu úr þýsku deildinni.

Slot var rekinn í síðustu viku eftir vonbrigðatímabil á öðru ári hans í Liverpool, en hann leiddi liðið til Englandsmeistaratitils á fyrsta árinu við stjórnvölinn.

Liverpool keypti Hugo Ekitike, Florian Wirtz og Jeremie Frimpong úr þýsku deildinni síðasta sumar og kemur fram að nýju strákunum hafi ekki litist á blikuna þegar Slot byrjaði að grínast með árangur þeirra úr þýska boltanum og gera lítið úr honum.

„Hafið þið unnið úrvalsdeildina?" er Slot sagður hafa sagt við leikmennina. „Þið getið kannski komist upp með að spila svona í þýska boltanum en ekki hér."

Í stað þess að gagnrýna leikmennina á uppbyggilegan hátt er Slot sagður hafa fallið í þekkta gryfju í íþrótta- og uppeldisheiminum. Gagnrýnin sem hann gaf til leikmanna var byrjuð að blandast við hroka og persónulegar móðganir.

Þess má geta að Alexander Isak, Ibrahima Konaté, Dominik Szoboszlai, Ryan Gravenberch og Wataru Endo hafa einnig leikið í efstu deild þýska boltans og eru sagðir hafa verið ósáttir með hegðun Slot.

Þrátt fyrir þessa frétt frá Bild er ljóst að Slot var mjög duglegur að verja leikmenn Liverpool í viðtölum á tímabilinu. Hann kom Wirtz, Frimpong og öðrum sífellt til varnar þegar fjölmiðlar gagnrýndu þá.

   05.06.2026 18:30
Slot sagði nei við Fulham

Slapp
banner