Athletic 0 - 1 Real Madrid
0-1 Sergio Ramos ('73 , víti)
0-1 Sergio Ramos ('73 , víti)
Real Madrid ætlar ekki að gefa neitt eftir í baráttunni um spænska meistaratitilinn en liðið vann Athletic Bilbao 1-0 í 34. umferð deildarinnar í dag.
Spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos skoraði sigurmark Madrídinga úr vítaspyrnu á 73. mínútu.
Hann hefur verið hreint út sagt ótrúlegur með liðinu undanfarið en hann hefur skorað 7 mörk í síðustu ellefu deildarleikjum liðsins.
Real Madrid er í efsta sæti deildarinnar með 77 stig, sjö stigum meira en Barcelona sem á leik við Villarreal í kvöld.
Athugasemdir