Nicolas Anelka, fyrrum sóknarmaður franska landsliðsins, ritaði bréf til Kylian Mbappe í gegnum The Athletic.
Mbappe átti slakt Evrópumót. Hann skoraði ekki mark á mótinu og klúðraði örlagaríku víti gegn Sviss í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitunum. Frakkar féllu þar úr leik.
Mbappe er aðeins 22 ára gamall og hann er nú þegar einn af betri leikmönnum í heimi.
Anelka þekkir það vel að klúðra örlagaríku víti. Hann gerði það sem leikmaður Chelsea gegn Manchester United í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2008. Vítið sem Anelka klúðraði skildi á milli.
Anelka segir að Mbappe verði að spila leiki og skora mörk til að byrja því að gleyma, það verði þó ómögulegt að gleyma því alveg.
Anelka virðist vera mikill aðdáandi Mbappe og hann segir að þeir eigi margt sameiginlegt. Þeir eru báðir úr úthverfum Parísar og báðir voru þeir í sviðsljósinu frá unglingsárunum. Mbappe spilar með Paris Saint-Germain, líkt og Anelka gerði. Mbappe þarf fljótlega að taka stóra ákvörðun; að vera áfram í París eða fara annað. Samningur hans rennur út á næsta ári. PSG getur unnið Meistaradeildina, en Anelka segir að Mbappe verði að fara til að geta talist með bestu fótboltamönnum í heimi.
„Það sem þú gerir í París verður flott en það mun alltaf einhver segja: 'Það var bara í Frakklandi. Bestu deildirnar eru í Englandi og á Spáni. Svo þú spilaðir ekki gegn bestu leikmönnunum í bestu deildunum'."
„Þú þarft að ákveða þig. Ef þú vilt vinna Ballon d'Or og vera nefndur í sömu setningu og Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, þá þarftu að spila gegn þeim bestu. Þú getur ekki sagt að þú spilir alltaf gegn þeim bestu þegar þú ert í PSG. Franska deildin er ekki auðveld en erfiðasta deildin er á Englandi."
„Kylian, gangi þér vel með næstu skref," skrifar Anelka.
"If you want to win the Ballon d’Or, which is what you should be looking at to echo Ronaldo & Messi, you’ll have to compete with the best.
— The Athletic UK (@TheAthleticUK) July 5, 2021
"You can’t say you compete with the best all the time when you are at PSG."
Nicolas Anelka writes to Kylian Mbappe... #FRA #EURO2020
Athugasemdir